19.990 kr.14.990 kr.
*Tilboð gildir út 28-05-2024
- Akureyri
- Selfoss
- Fitjar
- Skeifan
- Grandi
- Smáratorg
- Vefverslun
- Bíldshöfði
Fáðu sent eða sæktu (L)
Verslaðu í vefverslun og fáðu fast sendingargjald um land allt eða sæktu í næstu verslun. *
*Fast sendingargjald tekur mið af stærstu vörunni í körfunni
Sjá nánarHEAVY þyngdarsæng 140x200 cm 7 kg heit HÖIE
HEAVY Þyngdarsængin hentar öllum, ekki bara þeim sem sofa illa vegna andlegra eða líkamlegra vandamála. Margir eiga í erfiðleikum með ná góðri hvíld vegna stress, áhyggja og kvíða. Sængin hefur mjög róandi áhrif þar sem þyngdin liggur jafnt á þér og aðlagast líkamanum.
Þyngdarsængur hafa lengi verið notaðar af fólki með ýmsar raskanir t.d. ADHD, kvíða, OCD, einhverfu- og Asperger heilkenni, ofvirkni, þunglyndi, Tourette, streitu, svefnvandamál o.fl.
Þyngdin og mátulegur þrýstingurinn frá sænginni gefur aukið öryggi og þar af leiðandi slakar þú betur á. Þannig er hægt ná betri nætursvefni. Tilfinningin að lig gja undir þyngdarsæng er best lýst sem mjúku faðmlagi.
Fyrir hámarksþægindi er áklæðið úr 100% bómull. Fyllingin er úr glerperlum og polyester sem er hólfað niður til að dreifa þyngdinni jafnt yfir líkamann svo þú slakir betur á.
Notkun:
Það getur tekið smá tíma fyrir þig að venjast þyngdarsænginni þannig að við mælum með að nota hana í styttri tíma fyrst um sinn, síðan er hægt að lengja tímann eftir því sem þér finnst þægilegt. Sængina er hægt að nota sem hefðbundna sæng, teppi uppi í sófa eða jafnvel bara á ákveðna líkamshluta t.d. axl ir. Það er engin rétt eða röng aðferð svo lengi sem þér líður vel.
Mælt er með að þyngdarsængin sé um 10-15% af líkamsþyngd þinni. Það fer þó allt eftir því hvað hentar hverjum og einum þannig að við mælum með að hlusta á hvað þér finnst henta best fyrir þig.
Ef þú ert með veik lungu eða lágan vöðvastyrk þá mælum við með að ráðfæra sig við lækni fyrir notkun. Ef þú finnur fyrir óþægindum skaltu hætta að nota sængina.
Upplýsingar
Stærð
Breidd: 135 cm × Lengd: 200 cm ×
AÐRAR UPPLÝSINGAR
Fólk með veik lungu og/eða lágan vöðvastyrk ættu að ráðfæra sig við lækni fyrir notkun. Ef þú finnur fyrir óþægindum skaltu hætta að nota sængina.
ÁBYRGÐ
10 ár
ÁKLÆÐI
100% bómullarcambric
FYLLING
90% glerperlur og 10% polyester trefjar
GÆÐAPRÓF
Ofnæmisvæn, Greenfirst áklæði og Oeko-Tex 100
HITAFLOKKUN
Meðalheit
INNIFALIÐ
Geymslutaska fylgir
KANTUR
Hvítur, 100% bómull
LITUR
Hvítur
ÞYNGD
7 kg
Þvottaupplýsingar
HREINSUN
Nei
KLÓR
Nei
STRAUJA
Nei
ÞURRKARI
Nei
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
Loftið um sængina og dustið létt af henni. Má ekki banka né ryksuga.
ÞVOTTUR
40°C extra fínþvottur